10 Júlí 2020 21:50

Brot 16 ökumanna voru mynduð í Klettahlíð í Hafnarfirði á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Klettahlíð í norðurátt, á móts við Furuhlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 40 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar í Klettahlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.