17 September 2010 12:00

Brot 12 ökumanna voru mynduð í Kríuási í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kríuás í suðurátt, við Áslandsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 36 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar í Kríuási er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.