11 September 2008 12:00

Brot átta ökumanna voru mynduð í Kríuási í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kríuás í vesturátt, við Áslandsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 22 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44,5 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tveir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59. Á þessum stað í Kríuási eru merktar gangbrautir.

Vöktun lögreglunnar í Kríuási er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.