17 Ágúst 2022 09:54

Brot 39 ökumanns var myndað í Lækjargötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lækjargötu í suðurátt, að Vonarstræti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 213 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.

Vöktun lögreglunnar í Lækjargötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.