7 Júní 2011 12:00

Brot 36 ökumanna voru mynduð í Langarima í Grafarvogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið suður Langarima að Mururima. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 104 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmur þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast fór var á 51 km hraða. 

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Í Langarima var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Langarima en þá óku um 30%, eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2009) var niðurstaðan hinsvegar 22%.