18 Maí 2010 12:00

Brot 31 ökumanns var myndað í Langarima í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langarima í suðurátt, að Rósarima. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 105 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49. 

Mælingarnar á í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Í Langarima var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Langarima en þá óku hlutfallslega færri, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 33%.