25 Maí 2012 12:00

Brot 33 ökumanna voru mynduð í Langarima í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langarima í suðurátt, að Rósarima. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 107 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar í Langarima er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.