1 Júní 2016 20:00

Brot 19 ökumanna voru mynduð í Langarima í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langarima í suðurátt, að Rósarima. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Langarima er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.