12 Maí 2017 17:15

Brot 21 ökumanns var myndað í Langarima í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langarima í suðurátt, að Rósarima. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 103 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Langarima er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.