18 Maí 2018 09:30

Brot 17 ökumanna voru mynduð í Langarima í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langarima í suðurátt, að Rósarima. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 87 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Langarima er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.