4 Maí 2022 09:24

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Langarima í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langarima í norðurátt, að Grasarima. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 138 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 43.

Vöktun lögreglunnar í Langarima er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, regn og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.