8 Maí 2009 12:00

Tuttugu og níu voru staðnir að hraðakstri í Langarima í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 29 ökumanna mynduð í Langarima en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, að Mururima. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 133 ökutæki þessa akstursleið og því óku 22% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Langarima og þá óku 33% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var svipuð umferð um götuna (139 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 43 km/klst.