13 Maí 2008 12:00

Brot 46 ökumanna voru mynduð í Langarima í Grafarvogi á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langarima í suðurátt, að Mururima. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 139 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tveir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59.      

Eftirlit lögreglunnar í Langarima er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Langarima var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.