17 Febrúar 2021 10:14

Brot 18 ökumanna voru mynduð í Lokinhömrum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lokinhamra í austurátt, að Dverghömrum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 36 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar í Lokinhömrum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.