11 Febrúar 2021 10:42

Brot 31 ökumanns var myndað í Lokinhömrum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lokinhamra í vesturátt, við Stakkhamra. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 59 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar í Lokinhömrum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.