24 Júní 2008 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð í Lönguhlíð í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lönguhlíð í suðurátt, að Drápuhlíð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 162 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.  Tveir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 76.