18 Júní 2009 12:00

Fjórtán voru staðnir að hraðakstri í Lönguhlíð í Reykjavík á þriðjudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á þriðjudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði var brot 14 ökumanna mynduð í Lönguhlíð en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, að Drápuhlíð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 159 ökutæki þessa akstursleið og því óku 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Lönguhlíð og þá óku líka 9% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var svipuð umferð um götuna (162 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var einnig 64 km/klst.