13 Nóvember 2012 12:00

Brot 2 ökumanna voru mynduð í Melgerði í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Melgerði í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru aðeins 8 ökutæki þessa akstursleið. Hinir brotlegu mældust á 39 og 50 km hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar í Melgerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.