17 Nóvember 2020 15:21

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Mosavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í austurátt, á móts við Hamravík. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 88 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Mosavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.