13 Júní 2012 12:00

Brot 17 ökumanna voru mynduð í Bugðu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bugðu í vesturátt, við Kólguvað í Norðlingaholti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58. 

Vöktun lögreglunnar í Bugðu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.