25 Júní 2012 12:00

Brot 13 ökumanna voru mynduð í Bugðu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bugðu í austurátt, við Kólguvað í Norðlingaholti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 24 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 54%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54. 

Vöktun lögreglunnar í Bugðu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. Við hraðamælingar lögreglunnar í Bugðu fyrir tæpum hálfum mánuði var brotahlutfallið nánast hið sama og nú, eða 53%.