25 Ágúst 2014 12:00

Brot 29 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í vesturátt, á móts við Gyðufell. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 61ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar í Norðurfelli er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.