26 Janúar 2015 15:25

Brot 23 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í austurátt, á móts við Gyðufell. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru  85 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Norðurfelli er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.