24 Apríl 2009 12:00

Fimmtíu og einn var staðinn að hraðakstri í Norðurfelli í Reykjavík á þriðjudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á þriðjudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði var brot 51 ökumanns myndað í Norðurfelli en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Gyðufelli. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 86 ökutæki þessa akstursleið og því óku 59% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrettán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Norðurfelli og þá óku 40% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var meiri umferð um götuna (117 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var tæplega 46 km/klst.