5 Maí 2020 11:39

Brot 56 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í vesturátt, á móts við Gyðufell. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 109 ökutæki þessa akstursleið og því ók rétt meira en helmingur ökumanna, eða 51%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrettán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar í Norðurfelli er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.