26 Ágúst 2020 15:01

Brot 46 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í vesturátt, við Gyðufell, í námunda við Fellaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 104 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar í Norðurfelli er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.