6 Maí 2022 09:32

Brot 18 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í vesturátt, að Fannarfelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 130 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar í Norðurfelli er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.