23 September 2009 12:00

Brot 54 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í austurátt, við Gyðufell. Á einni klukkustund, í hádeginu, fóru 92 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tíu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56. 

Vöktun lögreglunnar í Norðurfelli, en við götuna er Fellaskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.