26 Apríl 2011 12:00

Brot 49 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í vesturátt, við Gyðufell. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 91 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 54%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sextán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 40-59% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 45-47 km/klst.