2 Mars 2012 12:00

Brot 53 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í vesturátt, við Gyðufell. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Norðurfelli er liður í umferðareftirliti hennar við skóla á höfuðborgarsvæðinu. Á umræddum tíma átti fjöldi skólabarna leið hjá og ennfremur voru akstursskilyrði ekki með besta móti enda mikil úrkoma.