29 Ágúst 2012 12:00

Brot 56 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í vesturátt, við Gyðufell. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 113 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tólf óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 65. 

Vöktun lögreglunnar í Norðurfelli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. Þess má geta að fjöldi skólabarna fór þarna um á meðan lögreglan var við hraðamælingar, en Fellaskóli er við götuna.