23 September 2008 12:00

Brot 55 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Breiðholti í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurfell í vesturátt, við Gyðufell. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 94 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 62. Á þessum stað í Norðurfelli eru bæði merktar gangbrautir og hraðahindranir.

Vöktun lögreglunnar í Norðurfelli, en við götuna er Fellaskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.