25 Apríl 2008 12:00

Brot 47 ökumanna voru mynduð í Norðurfelli í Breiðholti á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðufell í vesturátt, að Gyðufelli. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 117 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 61.      

Eftirlit lögreglunnar í Norðurfelli er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Norðurfelli var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Við vöktun á sama stað í ágúst árið 2007 óku hlutfallslega mun fleiri ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 63%. Þá var