9 Maí 2017 10:45

Brot 13 ökumanna voru mynduð í Ölduseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldusel í vesturátt, við Ystasel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 47 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Ölduseli er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.