31 Ágúst 2010 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð í Ölduseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldusel í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 45 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Ölduseli, en við götuna er Ölduselsskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.