23 Maí 2014 12:00

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Ölduseli í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldusel í vesturátt, að Ystaseli. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 42 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar í Ölduseli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.