28 Maí 2015 16:42

Brot 6 ökumanna voru mynduð í Ölduseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldusel í vesturátt, að Ystaseli. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar í Ölduseli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.