27 Apríl 2009 12:00

Fjörutíu og fjórir voru staðnir að hraðakstri í Ölduseli í Reykjavík á föstudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á föstudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 44 ökumanna mynduð í Ölduseli en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, við Tindasel. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 83 ökutæki þessa akstursleið og því óku 53% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Ölduseli og þá óku 64% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var aðeins minni umferð um götuna (61 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 46 km/klst.