28 Apríl 2008 12:00

Brot 39 ökumanna voru mynduð í Ölduseli í Breiðholti á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldusel í vesturátt, við Tindasel. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fór 61 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 64%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tíu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 63.      

Eftirlit lögreglunnar í Ölduseli er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Ölduseli var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.