8 Maí 2017 10:05

Brot 39 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, á móts við Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 94 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar í Rofabæ er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.