24 Ágúst 2018 18:09

Brot 37 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, á móts við Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 110 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Rofabæ er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.