12 September 2019 15:41

Brot 37 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, á móts við Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 94 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 69.

Vöktun lögreglunnar í Rofabæ er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru  á meðan hraðamælingunni stóð.