9 Mars 2012 12:00

Brot 39 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, við Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi fóru 112 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50 en það átti reyndar við um tvo ökumenn.

Vöktun lögreglunnar í Rofabæ er liður í umferðareftirliti hennar við skóla á höfuðborgarsvæðinu.