17 Október 2012 12:00

Brot 24 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, við Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 84 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Rofabæ er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.