2 Júní 2015 17:23

Brot 23 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, á móts við Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 89 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Rofabæ er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.