29 Apríl 2009 12:00

Fimmtíu voru staðnir að hraðakstri í Rofabæ í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 50 ökumanna mynduð í Rofabæ en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, gegnt Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 93 ökutæki þessa akstursleið og því óku 54% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þarna er 30 km hámarkshraði. Af tæknilegum ástæðum er ekki hægt að greina frá meðalhraða hinna brotlegu að þessu sinni.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Rofabæ og þá óku 60% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var töluvert minni umferð um götuna (67 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var tæplega 45 km/klst.