29 Apríl 2008 12:00

Brot 40 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Árbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, við Árbæjarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 67 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 60%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 53.      

Eftirlit lögreglunnar í Rofabæ er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Rofabæ var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.