24 Maí 2018 16:13

Brot 21 ökumanns var myndað í Safamýri í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, á móts við Framheimilið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 41 ökutæki þessa akstursleið og því ók um helmingur ökumanna, eða 51%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar í Safamýri er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.