6 Júní 2019 08:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð í Safamýri í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, á móts við Framheimilið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 42 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Safamýri er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.