1 Október 2020 13:09

Brot 32 ökumanna voru mynduð í Safamýri í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Safamýri í austurátt, á móts við Framheimilið. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 74 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Safamýri er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.